BÆKUR
Magnús Ólafsson
ljósmyndari
Gefin út í tengslum við yfirlitssýningu á verkum Magnúsar Ólafssonar þann 27. sept. til 1. des 2003 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Í þessari veglegu bók sem kostuð er af afkomendum þessa merka ljósmyndara er að finna 108 ljósmyndir eftir Magnús í gæðaprentun, teknar á fyrstu þremur áratugum 20. aldarinnar. Ljósmyndir hans vega salt milli heimildagildis og ævintýris og veita okkur einstæða sýn inn í horfinn heim og bregða upp svipmyndum frá tímabili sem samhliða tækniframförum einkenndist af þjóðfélagsbreytingum og þróun borgarsamfélags í Reykjavík.
Auk ljósmyndanna er að finna í bókinni greinar eftir Eirík Guðmundsson útvarpsmann og Guðmund Ingólfsson ljósmyndara.
Bókin verður til sölu í helstu bókabúðum landsins og einnig má nálgast hana á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Verð: 3.950 kr
Móðirin í íslenskum ljósmyndum
Í desember árið 2000 gaf Ljósmyndasafn Reykjavíkur út bókina Móðirin í íslenskum ljósmyndum. Í þessari ljósmyndabók er leitast við að setja fram sögulegt yfirlit íslenskra ljósmynda þar sem móðirin er myndefnið, allt frá lokum 19. aldar til nútíðar, og lögð áhersla á ljósmyndir bæði sem heimild og listrænan miðil.
Í bókinni eru birtar á íslensku og ensku greinarnar „ Lengi man móðir. Um mæður í íslenskum ljósmyndum“ eftir Önnudís G. Rudólfsdóttur félagssálfræðing og „Ágrip af sögu ljósmyndunar” eftir Guðbrand Benediktsson, sagnfræðing. Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir, listfræðingur, ritstýrði.
Móðirin í íslenskri ljósmyndun hefur að geyma hátt á þriðja hundrað ljósmyndir, frá rúmlega fimm tugumatvinnuljósmyndara og fjölda áhugaljósmyndara.
Um útgáfuna sá Ljósmyndasafn Reykjavíkur og var hún framlag þess á dagskrá hjá M-2000.
Tilboðsverð 1.000 kr
|