Marteinn Sigurgeirsson: Safnfræðsl  
 

Skólahópar

 

Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Borgarbókasafn bjóða upp á fjölmenningarlegt skólaverkefni. Sjáið sýninguna Heima-Heiman á Ljósmyndasafni í Grófarhúsi með nemendum ykkar og leggið fyrir þá meðfylgjandi verkefni.

Með þessu verkefni fá nemendur innsýn, í gegnum ljósmyndir, hljóð og texta, í þann veruleika sem margir flóttamenn mæta þegar þeir setjast að í nýju landi. Viðfangsefnin miða að því að nemendur setji sig inn í sumar þær aðstæður sem líf flóttamannsins felur í sér. Hvers myndu þau sjálf sakna ef þau þyrftu skyndilega að flýja frá eigin landi? Hvað myndu þau velja að taka með sér? Í anda sýningarinnar geta nemendur tekið myndir hvert af öðru og þeim hlutum sem eru þeim mikilvægir. Myndirnar mætti síðan setja upp í skólanum, en einnig er hægt að sýna þær á Borgarbókasafninu ef þess er óskað. Við vonum að þið hafið ánægju af verkefninu og hlökkum til að taka á móti sem flestum nemendum á Ljósmyndasafni Reykjavíkur á sýningartímanum, sem varir til 23. nóvember.

Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar áður og/eða hafið samband ef þið viljið fá nánari upplýsingar.
(johanna.gudrun.arnadottir@reykjavik.is eða kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is).

 

Verkefni fyrir skólahópa út frá sýningum safnsins skipa veigamikinn sess í safnfræðslu Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Verkefni eru gerð með hverri sýningu sem safnið setur upp í sal sínum á 6. hæð Grófarhúss. Safnið tekur á móti skólahópum eftir samkomulagi alla virka daga en safnfræðslan öllum nemendum að kostnaðarlausu. Allir nemendur í Grunnskólum Reykjavíkur fá ókeypis rútuferðir til og frá skóla. 

Að bóka heimsókn

Hver heimsókn tekur um eina klukkustund.

Tekið er á móti pöntunum milli kl. 8-16 virka daga.

Netfang: johanna.gudrun.arnadottir@reykjavik.is

Sími: 563-1790

Marteinn Sigurgeirsson hjá Myndveri Grunnskólanna veitir aðstoð við úrvinnslu ljósmyndaverkefna sé þess kosið. (Ath. einungis í boði fyrir Grunnskóla Reykjavíkur)

Netfang: myndver@hvasso

Símar: 5708800 og 896 2722

 


Ljósmyndasafn Reykjavíkur - Reykjavik Museum of Photography

©Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography photomuseum@reykjavik.is