Bjargey Ólafsdóttir: Slæðufjöll, 2008

Bjargey Ólafsdóttir, Speglaskór, 2008

Bjargey Ólafsdóttir: Áróra, 2008

 

 

 


Listsköpun Bjargeyjar Ólafsdóttur er ekki bundin við einn listmiðil heldur velur hún sér þann miðil sem henni finnst henta hugmyndinni best hverju sinni. Það má því líkja henni við alhliða hljóðfæraleikara því Bjargey fæst við kvikmyndagerð, hljóðverk, gjörninga, teiknar, málar og ljósmyndar. Í þetta skiptið er það einmitt ljósmyndin sem hún beinir athyglinni að og því er mjög ánægjulegt fyrir Ljósmyndasafn Reykjavíkur að setja upp sýningu listamanns sem byggir á slíkri nálgun.

Sýningin Tíra er samansafn táknmynda sem hafa ýmist orðið til draumum listamannsins eða sprottið fram í vitund hans milli svefns og vöku. Bjargey hrífur áhorfandann með sér inn í heim þar sem fegurð og hið andlega ræður ríkjum; þar sem jafn ólík atriði og hönd guðs, fjöll, töfrakassi, álfaskírnarfontur, slæður og teikningar af háhæluðum skóm koma við sögu, böðuð í dularfullu ljósi og fjölskrúðugum litum. Þrátt fyrir að hún haldi hér áfram að kanna lendur töfraraunsæis og súrrealisma eins og í fyrri verkum sínum, þá beinir Bjargey ekki sjónum sínum að manneskjunni sem slíkri heldur leitast fremur við að ljósmynda tilfinningu sem hefur fundið sér farveg í ofangreindum atriðum. Þar af leiðandi er sýningin ekki bundin saman af eiginlegum söguþræði heldur er eins konar flæði þar sem hægt er að gleyma stað og stund svífa um í tímaleysi eða algleymi.

Tíra fleygir áhorfandanum inn í hringiðu þar sem hugtök eins og dáleiðsla, heilun og sálnaflakk ráða ríkjum í heimkynnum sköpunar og innblásturs. Þessum heimi hins ósýnilega og andlega stillir Bjargey fram sem meðali gegn óhófi efnishyggjunnar sem hefur verið einkennandi lífsviðhorf á okkar dögum og beinir sjónum fólks að því að landamæri raunveruleikans eru kannski fremur fljótandi heldur en bein lína. Markmiðið er göfugt; hún leitast við að ljósmynda hið yfirnáttúrulega – jafnvel sjálfan guð. Og er hægt að ljósmynda hann og má það yfirhöfuð? Eins og Bjargeyju er eiginlegt í sinni listrænu vinnu þá gengur hún að viðfangsefninu fordómalaus og af einlægni og ekki hvað síst ljær því húmor og leik. Hvort sem guð er að finna í töfrakassanum, hvort sem hann er ljósgeisli innan um slæður í forgrunni fjallalandslags eða jafnvel inni í háhæluðu skónum, minnir Tíra okkur á taka eftir að lífsins dásemdir búa í huganum en eru hverfular í hendi ...

Bjargey Ólafsdóttir myndlistarmaður (f.1972) er með MFA gráðu frá Academy of Fine Arts í Helsinki, Finnlandi og nam kvikmyndagerð við Binger Film Institute í Amsterdam, Hollandi. Verk hennar hafa verið sýnd á sýningum og kvikmyndahátíðum í 26 löndum t.d. í Frakklandi á sýningunnni Printemps de Septembré sem skartaði einnig David Lynch, en fyrir þá sýningu fékk Bjargey frábæra dóma í hinu virta dagblaði Le Monde. Þess má geta að stuttmyndir Bjargeyjar verða sýndar á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Gautaborg í lok janúar.



Bjargey Ólafsdóttir: Hendi með töfrakristal, 2008
Bjargey Ólafsdóttir: Töfrapoki og kassi, 2008
Bjargey Ólafsdóttir, Töfrakassi, 2008

Til baka
 
©Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography 2006