|
Guðmundur
(f. 1946) lærði ljósmyndun hjá Otto
Steinert við Folkwangschule für Gestaltung í Essen í
Þýskalandi á árunum 1968 -1971 og var síðar aðstoðarmaður
hans. Guðmundur hefur rekið ljósmyndastofuna Ímynd
frá 1972 og fengist við alls konar ljósmyndun, aðallega
fyrir auglýsingar og leikhús. Myndir Guðmundar hafa birst
víða og verið á mörgum sýningum, enda er Guðmundur meðal
kunnustu ljósmyndara Íslands.
Á
sýningunni
Óðöl og innréttingar gefur að líta úrval
ljósmynda úr
fjórum syrpum
sem Guðmundur hefur unnið að undanfarna tvo áratugi.
Fyrst má telja „Sjoppurnar“, 11 stórar litmyndir frá
árunum 1989–1999. Þá stórar, svarthvítar myndir,
flestar teknar í miðbænum, sem tengjast að miklum hluta
skráningu á öllum húsum í Kvosinni á árunum 1986–87.
Enn fremur gefur að líta syrpu af litlum, svarthvítum
myndum, eins konar „gripið og greitt Reykjavíkurblús”
og loks nokkrar myndir úr syrpu um útjaðar
Stór-Reykjavíkur sem hefur vinnuheitið
Smálönd.
Guðmundur
Ingólfsson studied photography with Otto Steinert at
Folkwangschule für Gestaltung
in Essen, Germany, in 1968-1971, and was his assistant for a
time. Guðmundur has run the Ímynd photographic studio
since 1972, and has taken photographs of all kinds, but
especially for advertisements and the theatre. Guðmundur is
one of Iceland´s best-known photographers; his work has
been widely published, and exhibited in many shows.
|
|
HELSTU
SÝNINGAR :
1 9 7 5 & 7 6 í Norræna húsinu á vegum félagsins Listiðnar
1 9 8 1 The Frosen Image
á Scandinavia Today, Walker Arts Center,
Minneapolis.
1 9 8 3 Akademie der Künste, Berlin og Bonn og Reykjavík
1 9 8 5 Nordisk
Fotokunst, Brandts Klædefabrik, Odense
1 9 8 8 The Frosen Image
á Scandinavia Today, Walker Arts Center, Minneapolis
1 9 8 9 Tampere, Finnlandi
1 9 9 1 Image Gallery, Aarhus
1 9 9 2 Barbican Center, London
1 9 9 8 Heimahagar
– Homeplaces,
pArts Gallery Minneapolis, Minnesota, Ásmundarsal og víðar
1 9 9 9
Íslensk ljósmyndun, Siglufirði
2 0 0 0
Gallerí Kambur, Landssveit
2 0 0 1 Stalke Gallery, Kaupmannahöfn
|