| |
|
|
 |
|

|
Verkfræðingar við framvindueftirlit í álveri /
Engineers, Progress Inspection of Aluminium Plant.
Straumsvík 1968.
|
|
Múrari / Cement Finisher, Búrfellsvirkjun, 1967.
|
|
|
|
Jakob Jakobsson
GENGIÐ AÐ VERKI
23.janúar – 9.maí 2010
|
Jakob Jakobsson hefur tekið ljósmyndir í hálfa öld. Helstu viðfangsefni hans hafa verið portrettmyndir, landslagsmyndir og myndir af fólki við byggingarstörf. Sýningin Gengið að verki sem nú er sýnd í Ljósmyndasafni Reykjavíkur fjallar einmitt um það síðastnefnda; svarthvítar myndir af byggingarstörfum og er lögð sérstök áhersla á myndir teknar á Íslandi á árunum 1955 til 1970. Ljósmyndirnar hafa ekki einungis mikið sögulegt gildi heldur eru teknar með næmu auga ljósmyndarans Jakobs sem vegna ævistarfs síns sem byggingatæknifræðingur hefur tekið þátt í mörgum stórum byggingaframkvæmdum og eru þar helstar Búrfellsvirkjun og Findhornbrúin í skosku hálöndunum.
Jakob horfir á byggingarstaðinn af sama sjónarhóli og hann skoðar heiminn og er sýn hans ákaflega mannleg. Hvort sem hann tekur myndir úr nálægð eða úr fjarska leggur hann áherslu á fólk, sem er niðursokkið í verkleg störf. Á myndinni „Mælingamenn“ sjáum við menn berjast við að reisa mælistikur í hávaðaroki. Á myndinni „Smiðir reisa sementsgeymslu“ liggja smiðirnir yfir teikningum. Á myndinni „Matseljur fylgjast með opnun skurðar“ sjáum við þessa viðhafnarathöfn með augum kvennanna sem hafa eldað og borið fram mat fyrir byggingarverkamennina. Í myndum sínum leikur hann sér að mótsagnakenndum stærðarhlutföllum. Maðurinn verður oft örsmár við hlið risavaxinna mannvirkja en gegnir þó þýðingarmiklu hlutverki í heildarmyndinni. Á myndunum sem teknar eru á Íslandi skapar landslagið nýja vídd í þessum leik að stærðum og hlutföllum, hinar víðáttumiklu eyðimerkur og miklu eldfjöll kallast á við risastærð mannvirkjanna.
   
|

Matseljur fylgjast með opnun skurðar / Canteen Staff Watching Canal Gate Opening, Búrfellsvirkjun, 1969.
|

Mælingamenn / Surveyours, Þórisvatn,1962.
|
Hekla og inntaksvirki / Hekla and the Intake Structure.
Búrfellsvirkjun1969.
|
 |
|
| ©Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography 2006 |