Við tjörnina / By the Pond, Ísland /Iceland, 2009.


 
Vatnaliljur / Water Lily, Ísland / Iceland, 2008.

Jóna Þorvaldsdóttir
SKYNJANIR / SENSES

23.janúar – 9.maí 2010


Jóna Þorvaldsdóttir ljósmyndari er þekkt fyrir að nota sígildar ljósmyndunaraðferðir (alternative photography) við gerð verka sinna en þær voru vinsælar á upphafstímum ljósmyndunar. Auk hinnar hefðbundnu silfur-gelatín prentunar notar Jóna palladíum-platínum aðferðina og bromoil blektækni og nýtur þar töluverðrar sérstöðu hér á landi. Þess má geta að ljósmyndarinn Pétur Brynjólfsson (1881-1930) notaði platínu-palladíum aðferðina við kóperingu fram að fyrri heimsstyrjöld.

Jóna tekur ljósmyndir sínar á gamla blaðfilmuvél og notar filmur sem eru í 8x10 formati þ.e. 20x25 cm að stærð. Filmurnar framkallar hún í bökkum og kontaktprentar svo myndirnar á gæða vatnslitapappír undir útfjólubláu ljósi eða sólarljósi. Myndheimur Jónu er sveipaður dulúð og mýkt og vinnsla myndanna með þessum gömlu aðferðum eykur ennfremur á þá eiginleika.

Um verk sín segir Jóna: „Ég legg mikið upp úr prentuninni á myndunum mínum og nýt þess að dvelja löngum stundum í myrkraherberginu mínu, það er mín hugleiðsla. Ég læt hugann reika og gef ímyndunaraflinu lausan tauminn. Oft koma myndirnar allt öðruvísi út en ég hafði áætlað sem gerir ljósmyndaferlið bara meira spennandi … Flestar þeirra mynda sem mér þykir vænst um hafa orðið til þegar ég hef náð að fylgja innsæinu og ekki ákveðið of mikið fyrirfram hvernig myndirnar ættu að vera. Ég geri mér grein fyrir að það er nauðsynlegt að skipuleggja sig, sérstaklega þegar ferðast er til framandi staða en það er eins og það virki best fyrir mig að takast á við umfangsefnið eins og það kemur fyrir hverju sinni, láta hlutina gerast og vinna út frá því“

Jóna Þorvaldsdóttir lærði ljósmyndun við European Institute of Photography í Póllandi á árunum 1997-2000. Hún hefur búið víðsvegar um heim og hefur sótt fjölda ljósmyndanámskeiða einkum í sígildum ljósmyndunaraðferðum (alternative photography) m.a. "Handmade photograph" námskeið hjá Elisabeth Opalenik í The Workshops, Maine árið 2001, námskeið hjá Mary Ellen Mark í Mexikó árið 2006, "Introduction to alternative processes" námskeið hjá Brenton Hamilton í The Workshops, Maine árið 2008 og haustið 2009 námskeið í bromoil blektækni hjá Daniel W. Lewis í Oregon í Bandaríkjunum.

 

Photographer Jóna Þorvaldsdóttir is known for her use of alternative photography, i.e. methods used in the early days of photography. In addition to the traditional silver-gelatine method, she uses the palladium-platinum process and bromoil printing technique, which makes her highly unusual in Iceland. Interestingly, Icelandic photographer Pétur Brynjólfsson (1881-1930) continued to use the platinum-palladium method for copying until World War I (1914-18).

Jóna takes her photographs on an antique camera, using sheet film in 8x10 format (20x25 cm). She develops the films in trays, then makes contact prints on high-quality watercolour paper in ultraviolet light or daylight. Jóna’s visual world is imbued with mystery and tenderness, and these qualities are magnified by her use of these old processing techniques.

Jóna says about her work: “I care very much about the printing, I always print my images myself. I enjoy spending long hours in the darkroom, that is my meditation. I let the imagination run free and sometimes the images come out completely different from what I expected which makes the photography process so exciting … Most of my images were made when I managed to follow my insight. I prefer to deal with each project as it comes, let things happen and work from there. It is a good feeling when I believe that I´ve managed to capture on film and print the image in a way that depicts the atmosphere I experienced while taking the images.“
Jóna Þorvaldsdóttir studied photography at the European Institute of Photography in Poland in 1997-2000. She has lived in many different parts of the world, and has attended a large number of photography courses, mainly in the field of alternative photography, such as: a Handmade Photograph course with Elisabeth Opalenik at the Workshop in Maine, USA, in 2001; a course with Mary Ellen Mark in Mexico in 2006; Introduction to Alternative Process with Brenton Hamilton at the Workshops, Maine, in 2008; and in the autumn of 2009 a course in bromoil processing with Daniel W. Lewis in Oregon, USA.








Grand Canal, Feneyjum / Venice, 2000.





Vatnadísir / Nymphs, Ísland /Iceland, 2009.



Saman gömul og grá / Happily ever after, Pólland / Poland, 1998.


Til baka

©Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography 2006