Sjónarhorn – Ljósmyndir eftir Wayne Gudmundson
18.september 2010 – 9.janúar 2011
Vestur-Íslendingurinn Wayne Gudmundson hefur um árabil getið sér gott orð fyrir víðáttumiklar landslagsmyndir sínar. Wayne hóf að taka landslagsljósmyndir í byrjun níunda áratugarins eftir að hafa lagt stund á ljósmyndun í rúm tíu ár. Í bernsku kynntist hann sögunum og hefðunum frá Íslandi í gegnum föðurforeldra sína sem voru í hópi Vesturfaranna. Eftir því sem árin liðu og verk hans þróuðust fann Wayne hjá sér löngun til að kanna land forfeðra sinna en hann kom til Íslands í fyrsta skipti árið 1997. Hann tók hér m.a. myndir af Öskju, Herðubreið, Jökulsárlóni og Grímsey en landslag í Norður Dakóta og á Íslandi á það sameiginlegt að vera gríðarlega víðáttumikið. Þetta sama ár setti hann upp sýninguna Heimahagar ásamt hinum góðkunna íslenska ljósmyndara Guðmundi Ingólfssyni og var hún afrakstur ferða þeirra á heimaslóðir hvors annars, Wayne tók myndir á Íslandi og Guðmundur í Norður-Dakóta.
Sjóndeildarhringurinn er ávallt sýnilegur í myndum Waynes. Hann forðast hið stórbrotna og hið upphafna en einbeitir sér þess í stað að veruleika hvers staðar eins og hann er. Fyrst á heimaslóðum sínum í Norður-Dakóta og svo á Íslandi, þar sem hann taldi sig finna eitthvað sem hann hafði ekki uppgötvað áður. Það má því til sanns vegar færa að hann hafi farið og leitað uppruna síns í gegnum ljósmyndunina. Myndirnar kalla fram fortíð og framtíð í sömu andrá og í áranna rás hefur á myndum Waynes mátt sjá glögglega þau ummerki sem maðurinn skilur eftir sig í landinu. Má með sanni segja að honum hafi tekist að fókusera á tilfinningu sína fyrir landinu og leiða sýn sína á það inn um ljósopið, komandi kynslóðum til fróðleiks um fortíðina.
Ljósmyndir eftir WaynesGudmundson eru í umsjá Plains art Museum í Fargo, North Dakota. Sýningin er að hluta til styrkt af North Dakota institute for Regional Studies at North Dakota State University, Elizabet Firestone Graham Foundation, the North Dakota Council on the Arts og American Masterpieces initiative of the National Endowment for the Arts.
 |