Ljósmyndari Leifur Þorsteinsson, sýningaröð 2011 - 1. hluti.

 

 

Ljósmyndari Leifur Þorsteinsson, sýningaröð 2011 - 2. hluti.

 

 

 

 


Leifur Þorsteinsson sýningaröð 2011

Leifur Þorsteinsson er einn af brautryðjendum auglýsinga- og iðnaðarljósmyndunar á Íslandi. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1933 og varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1955 og hélt að því loknu til Kaupmannahafnar. Leifur nam eðlis- og efnafræði í þrjú ár áður en hann sneri sér alfarið að ljósmynduninni og stóð fyrir vikið feti framar samnemendum sínum í myndvinnslunni. Hann komst á samning hjá ljósmyndaranum Jan Selzer og vann meðfram námi hjá honum við gæðaeftirlit, efnavinnslu, mælingar á lit og önnur tilfallandi verkefni. Leifur hóf feril sinn hér á landi árið 1962 þegar hann kom aftur heim frá Danmörku.
Íslensk auglýsinga- og iðnaðarljósmyndum var komin skammt á veg hérlendis þegar Leifur flutti aftur heim og að hans sögn „algjörlega óplægður akur á Íslandi og skilningur augljóslega heldur ekki fyrir hendi á þessari nýju tegund ljósmyndunar. Þetta var iðulega þannig að viðskiptavinurinn kom seinnipart dags og bað um að láta gera fyrir sig klisju til að setja í Morgunblaðið og hún átti að vera tilbúin morguninn eftir. Menn fengu ekki borgað fyrir þetta í peningum heldur í vöruskiptum.“

Leifur var fyrstur til að nota lit í auglýsinga- og iðnaðarljósmyndun á Íslandi, hann byrjaði að taka á 4x5 tommu blaðfilmu í lit. Helstu einkasýningar Leifs eru Myndir úr borginni árið 1968, í Bogasal, Þjóðminjasafni Íslands, Pictures from Iceland árið 1970 í Denver, Bandaríkjunum, Fólk í Bogasal, Þjóðminjasafni Íslands árið 1975 og Kyrralíf í Stöðlakoti árið 1993. Hann hefur tekið þátt í sýningum víða, bæði innanlands og utan. Má þar nefna þátttöku hans í heimssýningunni EXPO 70 í Osaka auk þess sem hann var í forsvari í myndavali fyrir Íslendinga á ljósmyndasýningunni Frozen Image á Scandinavia Today í Bandaríkjunum árið 1982. Árið 2004 hélt hann sýningu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Fólk og borg. Fyrir sýninguna Kyrralíf í Stöðlakoti hlaut Leifur menningarverðlaun DV fyrir listhönnun.
Leifur er einn af stofnendum Ljósmyndasafnsins sem síðar varð Ljósmyndasafn Reykjavíkur og hefur unnið ötullega að fræðslu um ljósmyndun, fyrst á vegum Ljósmyndarafélagsins, síðar í Iðnskólanum og Listaháskólanum. Þekking Leifs á efnafræðilegri hlið ljósmyndunar, varðandi lit og litvinnslu, er mikils metin og hefur hann verið lærifaðir margra íslenskra ljósmyndara á því sviði sem og í tölvu- og myndvinnslu.

Leifur Þorsteinsson is one of the pioneers of advertising and commercial photography in Iceland. Born in Reykjavik in 1933, he graduated from Reykjavik High School in 1955 and then went to Denmark, where he studied physics and chemistry for three years before he turned to photography. He was apprenticed to photographer Jan Selzer, and worked along with his studies in the colour-processing studio in quality control, chemicals, colour measurements and other tasks. His experience in physics and chemistry proved helpful to him in the technical aspects of his photograpahic training. Leifur started his career in 1962 when he went home to Iceland.
Icelandic advertising and commercial photography was in its infancy when Leifur returned, and he says that “advertising and commercial photography was virgin territory in Iceland, and clearly there was no understanding of this new form of photography. Customers would always turn up towards the end of the day, and ask for some cliché to be prepared for publication in Morgunblaðið, to be ready the following morning. You generally didn’t get paid in money – it was barter trade.”
Leifur was the first person to introduce colour into commercial and advertising photography in Iceland, taking photos on 4x5-inch colour sheet negatives. His major one-man shows are: Photos of the City in 1968 at the National Museum of Iceland gallery, Pictures from Iceland in 1970 in Denver, USA, People at the National Museum gallery in 1975 and Still Life at Stöðlakot gallery in 1993. He has shown his work both in Iceland and abroad. He took part, for instance, in EXPO 70 in Osaka, and was in charge of selection for the photographic exhibition Frozen Image at Scandinavia Today in the USA in 1982. In 2004 he held the exhibition People and the City at the Reykjavik Museum of Photography. For Still Life he received the DV Arts Award for Design.
Leifur was one of the founders of the Museum of Photography (now Reykjavík Museum of Photography) and has been active in teaching photography, initially through the Association of Photographers, and subsequently at the Technical College and the Academy of Arts. Leifur’s expertise in the chemical aspects of photography, such as colour and colour processing, is much respected, and he has been a mentor to many Icelandic photographers in this field, and also in computer technology.



5. hluti – Mannlífsmyndir frá Evrópu

3.nóvember 2011 – 8. Janúar 2012


Í fimmta hluta sýningarraðar Leifs Þorsteinssonar er sjónum beint að mannlífsmyndum teknum í Evrópu á tímabilinu ca.1958 – 1980. Myndirnar tók Leifur á námsárum sínum í Kaupmannahöfn og á ferðalögum um Evrópu, m.a. frá London, París og Spáni. Þær gefa innsýn inn í daglegt líf fólks og sýnir það í ólíkum aðstæðum. Hvort sem um er að ræða verkamenn við vinnu á götum Kaupmannahafnar, aldraðan mann á kaffihúsi í París eða fólk í skírnarveislu á Spáni þá er það hið sammannlega sem Leifur nær að sýna okkur á áreynslulausan og eðlilegan hátt.

Sýningarstjóri er Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari


Part 5 – Street life in Europe

The fifth part of Leifur Þorsteinsson series focuses on street life taken in Europe between ca. 1958 – 1980. Leifur took the photos while studying in Copenhagen and on his travels to e.g. London, Paris and Spain. They provide an insight in people´s daily life and shows them in different actions. Whether it´s workers in the streets of Copenhagen, an old man in a Parisian cafe or people in a babtism ceremony in Spain, Leifur manages to show us aspects shared by all humans in an effortless and a natural way.
Curator: Guðmundur Ingólfsson photographer


4. hluti – Portrett af listamönnum

3. september– 3.nóvember 2011

Fjórði hluti sýningarraðar Leifs Þorsteinssonar er tileinkaður portrettljósmyndun. Um er að ræða 20 svarthvítar myndir, flestar teknar í kringum 1980, af helstu myndlistarmönnum þjóðarinnar þess tíma. Hluta af myndunum tók Leifur fyrir bókina Íslensk list sem gefin var út af bókaútgáfunni Hildi og kom út árið 1981 en útgefandi var Gunnar S. Þorleifsson.

Á sýningunni má sjá portrettmyndir allt frá Gunnlaugi Scheving, Finni Jónssyni og Kristjáni Davíðssyni til Nínu Tryggvadóttur, Sverris Haraldssonar og Hildar Hákonardóttur. Ljósmyndirnar eru teknar ýmist í stúdíói sem og vinnuumhverfi listamannanna.

Sýningarstjóri sýningarinnar er Sissa ljósmyndari.


The fourth part of Leifur Þorsteinsson´s photo-series is dedicated to portrait photography. The exhibition consists of 20 b/w photos, mostly shot around 1980, of Iceland´s most prominent artists in that period. Part of the photos were taken for the book Íslensk list (Icelandic Art), published by Hildur publishing house in 1981, which publisher was Gunnar S. Þorleifsson.
In the exhibition, portraits of e.g. Gunnlaugur Scheving, Finnur Jónsson, Kristján Davíðsson, Nína Tryggvadóttir, Sverrir Haraldsson and Hildur Hákonardóttir can be seen. The photographs are taken both in a studio and in the artist´s environment.
The curator of the exhibition is Sissa photographer.


3. hluti – Litur: Ólík tækni - ILFORD Royal og litprent

14.maí – 28.ágúst

Í þriðja hluta sýningaraðar Leifs Þorsteinssonar kennir ýmissa grasa, meðal annars eru ljósmyndir af blómum sem eru teknar á 4x5 tommu blaðfilmu af gerðinni „Kodacolor HD“ sem er með hærri litarmettun en venjuleg filma. Ljósmyndirnar eru síðan prentaðar á litpappír (negatívan), tegund: ILFORD royal sem ekki er til lengur en var framleiddur hjá Ciba í Sviss. Pappírinn er fyrst kótaður með speglandi lagi sem endurkastar ljósi, þannig fæst dýpri mettun í litina og kallar fram þessi áhrif.
Myndirnar þrjár sem koma þar á eftir eru ljósmyndir teknar á svæði Björgunar í Grafarvogi.
Leiðin til Bessastaða nefnist síðasta myndaröðin í þriðja hlutanum og skartar fimm ljósmyndum af byggingunum sem stóðu við veginn út á Álftanes en þóttu ekki lengur við hæfi og voru því fjarlægðar.

Sýningastjóri - Bára ljósmyndari

 

Part 3 – Colour: Different techniques - ILFORD Royal and colour print

The third part of the Leifur Þorsteinsson photo series spans a considerable range, including photographs of flowers taken on 4x5 inch Kodacolor HD film, which has greater colour saturation than most film types. The images are printed on a colour paper, ILFORD Royal, which is no longer in production. It was made by the Swiss company Ciba. The paper is coated with a light-reflective layer, which provides greater colour saturation, producing a luminous effect. The next three images are taken at the work site of the Björgun contracting company in Grafarvogur, Reykjavík. The Way to Bessastaðir, the last series in this part, comprises five photographs of buildings that stood near the road which leads to the presidential residence at Bessastaðir on Álftanes, but have been removed as eyesores, unsuitable for that company.

Curator – Bára photographer


2. hluti – Landssmiðjan

21.mars – 8 maí 2011

Í öðrum hluta sýningarðar Leifs Þorsteinsson ber að líta 15 myndir af Landsmiðjunni gömlu sem nú er horfin. Leifur tók myndirnar á sínum tíma fyrir Iðnsýningu Reykjavíkur árið 1966. Leifur tók líka myndir af eldsmiðjunni sem ekki voru sýndar á iðnsýningunni þar sem sá verkháttur var talinn gamaldags, því er um mjög merkilega heimild að ræða. Myndirnar sýna bæði menn að störfum sem og vinnuaðstöðuna í Landsmiðjunni. Í myndum má sjá samspil ljóss og skugga, og notast Leifur við birtuna sem kemur utan frá. Birtan fellur á dökk verkfærin í eldsmiðjunni, sem hefur verið raðað haganlega á sinn stað eftir langan vinnudag. Segja má að birtan myndi ákveðna dulúð en á sama tíma kalli hún fram kyrrð og ró. Þrátt fyrir að umhverfið sé órólegt og óhreint er það líka fallegt og þaulskipulagt. Einbeitnin og yfirvegun skýn úr andlitum iðnaðarmannanna eins og ljósmyndarinn sé hvergi nálægt.

Sýningastjóri - Bára ljósmyndari


Part 2 – Landssmiðjan

In the second part of Leifur Þorsteinsson‘s series there are 15 photos of old “Landssmiðjan“ which was a smithy that does not exist anymore. Leifur took the photos for Reykjavík industrial exhibition in 1966. Leifur also took photos of the forge in “Landssmiðjan” but those photos were not in the industrial exhibition because the method was considered old fashioned which makes these photos a very important sources today. The photographs show both men at work and the workplace in “Landssmiðjan”. In the photos there is interplay of light and shadow but Leifur only uses natural lightning. The light falls on the dark tools in the smithy, which are in the right place in a neat order after a long day of work. The light produces mystique but in the same time peace and quiet. Though the environment is disturbed and unclean it is also beautiful and organised. Concentration and deliberation shines in the workers faces like the photographer is nowhere to be seen.

Curator – Bára photographer

 

1. hluti – Polaroid transfer

22.janúar – 21.mars

Í fyrsta hluta sýningarðar Leifs Þorsteinssonar má sjá annars vegar Polaroid transfer myndir þar sem Polaroid- filma er yfirfærð á vatnslitapappír og því aðeins eitt eintak til að hverri mynd. Myndirnar sem eru í möttum og djúpum tónum voru hluti af sýningunni Kyrralíf sem var í Stöðlakoti og fékk Leifur Menningarverðlaun DV í listhönnun fyrir sýninguna. Bragi Ásgeirsson skrifaði um sýninguna í Morgunblaðinu þann 7. október 1993 og sagði „Alla þessa sýningu einkennir óvenjulegt látleysi og kyrrlát fegurð og svo vel tekst Leifi að fanga einkenni hvers myndefnis, að hvergi er um veikan punkt að ræða á allri sýningunni. Í myndunum... vinnur hann næstum í anda [franska 18. aldar] málarans J.-B.S. Chardins nema að hér er um að ræða ljósmyndir en ekki málverk, en verkin eru skyld að yndisþokka og látleysi.“
Hins vegar eru á sýningunni Polaroid pan ljósmyndir sem eru 35mm svart-hvítar skyggnur, skannaðar inn og prentaðar í tvílit.


Sýningarstjóri , Spessi ljósmyndari.

Part 1 – Polaroid transfer

The first part of Leifur Þorsteinsson’s series includes Polaroid transfer photos, where Polaroid film is transferred to water-colour paper, so there is only one copy of each photo. The photographs, which are in deep, matte tones, were shown in the exhibition Still Life at the Stöðlakot gallery, for which Leifur received the DV Arts Award for Design. Critic Bragi Ásgeirsson reviewed the show in daily Morgunblaðið on 7 October 1993 “An unusual straightforwardness and tranquil beauty characterises this exhibition; Leifur is so successful in capturing the essence of each subject that there is no weak point in the entire exhibition. In the photos one almost discerns the spirit of J.-B.S. Chardin [18th century painter], except that these are photographs not paintings – but they share the qualities of grace and modesty.”
Also in display are Polaroid pan photographs: 35mm black-and- white slides, scanned and printed in two colours.

Curator: Spessi photographer





     



©Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography 2010