|

SKOTIÐ - Hörður Sveinsson

Tónlistarflóð / Music Flood
20.04– 05.06 2012 Hörður Sveinsson hefur á undanförnum árum skapað sér nafn fyrir ljósmyndir sínar af poppmenningu á Íslandi, bæði sem blaðaljósmyndari fyrir Grapevine og Monitor og sem sjálfstæður ljósmyndari. Hann hefur myndað margar hljómsveitir og listamenn m.a. Björk, Sigur rós, Mugison, Ham, Of Monsters and Men, Retro Stefson og Lay Low. Segja má að titill sýningarinnar Tónlistarflóð vísi til þess mikla myndamagns sem Hörður hefur tekið, þess fjölda listamanna sem hann hefur myndað og síðast en ekki síst til hinnar miklu grósku sem er í íslenskri tónlist.
Hörður Sveinsson býr og starfar í Reykjavík.
Heimasíða Harðar er: http://www.hordursveinsson.com/
Hörður Sveinsson has in recent years become known for his photographs of Icelandic pop culture, both as press photographer for Grapevine and Monitor as well as an independent photographer. He has photographed many bands and artists e.g. Björk, Sigur rós, Mugison, Ham, Of Monsters and Men, Retro Stefson and Lay Low. It can be said that the title of the exhibition, Music Flood, bears references to the vast amount of images he has taken, the amount of artists he has photographed and last but not least, the constant growth of Icelandic music.
Hörður Sveinsson lives and works in Reykjavík.
Website: http://www.hordursveinsson.com/
SKOTIÐ - Sigurður Gunnarsson

Strætóskýli / Bus Stop
09.02– 17.04 2012
Strætóskýlin í borginni hafa ákveðið hlutverk, þau eiga að leiðbeina notendum almenningssamgangna og veita þeim skjól meðan beðið er eftir fari á ákvörðunarstað.
Þó að hlutverk skýlanna virðist einfalt er útlit þeirra ekki einsleitt og hefur það breyst mikið frá því að þau voru fyrst sett upp fyrir meira en 50 árum. Þau eru líka kennileiti sem endurspegla íslenskt samfélag; þróunina frá nýtishyggju til markaðsvæðingar.
Sýningin „Strætóskýli” varpar ljósi á viðfangsefnið sjálft; arkitektúr
og form þess sem við flest þekkjum og höfum nýtt okkur en hefur þó ekki verið gerð ítarlega skil áður.
Sigurður Gunnarsson (f. 1978) er búsettur í Reykjavík. „Strætóskýli” er hans fimmta sýning.
Reykjavík´s bus stops have a certain role. They are supposed to guide the users of public transport and providing them shelter while waiting for their ride. Although their role seems simple their structure is not. It has changed a lot since they were built more than fifty years ago. They are also a symbol, which mirrors Icelandic society; the development from utilitarian idea to marketing.
The exhibition “Bus stops” sheds light on the subject itself; its architecture and form, that we all know and have used but still hasn’t been analyzed in detail before.
Sigurdur Gunnarsson (b. 1978) lives in Reykjavík. “Bus Stop” is his fifth exhibition.
SKOTIÐ - Hlynur Pálmason

Hvítblinda
22.12 2011 – 07.02 2012
“Hvítblinda er skuggalaus birta á alhvítum svæðum sem verður til vegna endurkasts ljóss fram og aftur þannig að engan mun sér himins og jarðar.”
Sýningin Hvítblinda fjallar um fjarlægðir og upplýsingar í mynd og hljóði og hvernig þetta tvennt tengist saman. Bilið á milli þess að vera eitthvað og vera ekki neitt. Bilið á milli þess að vera tónlist og vera hljóð. Bilið á milli þess að vera svart og hvítt.
Hugmyndin bak við sýningu Hlyns Pálmasonar, Hvítblindu, er að tengja saman hljóð og mynd og leitast þannig eftir að skapa kröftugt andrúmsloft á sýningunni. Hljóðverkin eru unnin af Ásgeiri Aðalsteinssyni, hann er útskrifaður úr LHÍ og stundar nú í mastersnám í tónsmíðum í Amsterdam.
Ljósmyndirnar eru teknar á Íslandi á tímabilinu 2008 – 2011 og eru þær teknar á filmu.
Hlynur Pálmason, sem er frá Höfn í Hornafirði, er búsettur í Kaupmannahöfn þar sem hann stundar nám í leikstjórn við danska kvikmyndaskólann. Hlynur hefur fengist talsvert við stuttmyndagerð en árið 2009 var mynd hans Jóel valin á eina virtustu stuttmyndahátíð Evrópu í Clermont í Frakklandi.
Sýningin er styrkt af Vinum Vatnajökuls og Skinney Þinganes.
„White Blindness is brightness in all-white areas, due to reflected light back and forth so no difference can be seen between heaven and earth.“
The exhibition is about distances and information in image and sound and how they interconnect. The gap between being something and being nothing. The gap between being music and being sound. The gap between being black and being white.
The idea behind Hlynur Pálmason´s exhibition is connecting sound and image and thus seeking to create a powerful atmosphere in the exhibition. The sound works are by Ásgeir Aðalsteinsson, a BA graduate from Icelandic Art Academy who is now studying for MA in Composition in Amsterdam.
The photographs are taken in Iceland in 2008 – 2011 and are taken on film.
Hlynur Pálmason, who comes from East-Iceland´s Höfn in Hornafjörður, currently resides in Copenhagen where he is studying Directing at the Danish Film School. In 2009, Pálmason´s short film Jóel was chosen to be on one of Europe´s most recognized short film festival in Clermont, France, but he has worked extensively in that medium.
The exhibition is sponsored by Vinir Vatnajökuls and Skinney Thinganes
SKOTIÐ - Soffía Gísladóttir

Vino tinto y agua con gas
20.okt. - 14.des. 2011
Sýning Soffíu Gísladóttur Vino tinto y agua con gas samanstendur af myndum sem hún tók þegar hún bjó í Madrid á Spáni árið 2008 “Ég hafði ákveðnar hugmyndir um Madríd, fannst hún spennandi. Ég hafði ferðast víða um Spán en aldrei komið til Madrídar og var með rómantíska hugmynd um borgina.”
Á þessu hálfa ári sem hún dvaldi í borginni ferðaðist hún um hana og nærliggjandi bæi með myndavélina. Nánast daglega fór hún út með það að markmiði að leita að þessari rómantísku hugmynd. Á hverju götuhorni eru tapasbarir en þeir eru, eins og alkunna er, stór hluti af menningu Spánverja. Í íbúðarhverfunum koma nágrannar þar saman, konur og karlar, afar og ömmur og börn á öllum aldri. Soffía kom gjarnan við á tapasbar og pantaði sér „vino tinto y agua con gas“ á milli þess sem hún myndaði það sem fyrir augu bar.
Afrakstur þessara myndaferða eru innsýn inn í hversdagsleika sem Soffía upplifði – hversdagsleika sem má upphefja með rauðvínsglasi. Það má því segja að setningin „vino tinto y agua con gas“ nái að fanga vel þann andblæ sem ríkir á sýningunni.
Soffía Gísladóttir útskrifaðist með B.A gráðu frá grafíkdeild Listaháskóla Íslands árið 2001 og hafa verk hennar verið sýnd víða bæði á Íslandi og erlendis.
Vefsíða Soffíu er: www.soffia.net
The exhibition Vino tinto y agua con gas by Soffía Gísladóttir comprises photographs which she took while living in Madrid, Spain in 2008.
„I had specific ideas about Madrid, thought it was exciting. I had travelled extensively around Spain but had never been to Madrid and had a romantic idea about the city.“
During this six months stay, she travelled around the city and surroundings with her camera. Nearly every day she went outside with the aim to search for this romantic idea. On every street corner you find a tapas bar; as is commonly known, they are a large part of the culture in Spain. In the neighbourhoods, the inhabitants gather there, women and men, grandpas and grandmas and children at all age levels. Soffía regularly visited the tapas bars and ordered „vino tinto y agua con gas“, in between her photo shootings.
The result is an insight into the everyday life she experienced – an everyday life that can be elevated with a glass of red wine. Thus it can be said that the sentence „vino tinto y agua con gas“ captures the mood of the exhibition.
Soffía Gísladóttir graduated with a B.A. degree in Print making from the Iceland Academy of the Arts in 2001 and has since then exhibited widely both in Iceland and abroad.
Soffía´s website is: www.soffia.net
SKOTIÐ - Hjalti Sigfússon

Réttir
26.ágúst - 19.október 2011
Á sýningunni Réttir er að finna myndir eftir Hjalta Sigfússon teknar á síðustu árum í Haukadalsréttum í Dalasýslu af bændum, búfénaði og aðkomumönnum.
Fjallskilareglugerð kveður á að smala skuli fyrir Haukadalsréttir fyrsta laugardag eftir 12. september ár hvert. Þá er jafnan margt um manninn og leggja margir leið sína úr bænum til að aðstoða bændur við smölun. Sauðfé dafnar mjög vel yfir sumarmánuðina á þessu svæði þar sem lyngi vaxnar brekkurnar ná heim að dyrum bæjanna. Þar af leiðandi er féð einkar vænt þegar því er smalað úr sumarhögum sínum til byggða á haustin.
Hjalti vann ljósmyndasamkeppni sem haldin var á vegum Flickr@Iceland, Höfuðborgarstofu og Menningarnótt 2010 en hann hlaut fyrstu verðlaun, ljósmyndasýningu í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Hjalti Sigfússon (f. 1984) er áhugaljósmyndari með mikinn áhuga á íslenskri náttúru og öllu því sem hún hefur upp á að bjóða.
Áhugasamir sendið póst á hjalti@hjaltisigfusson.com
Heimasíða - www.hjaltisigfusson.com
SKOTIÐ - Jóhannes Kjartansson 
Næstum því lifandi / Almost Live 30.júní – 25. ágúst
Jóhannes Kjartansson hefur síðastliðið ár tekið ljósmyndir fyrir LiveProject, annars vegar á Reykjavík Fashion Festival og hins vegar fyrir AK Extreme snjóbrettahátíðina. Að þessu sinni fer hann út fyrir landsteinana og tekur myndir á Hróarskeldu hátíðinni í Danmörku. Verkefnið felst í því að taka myndir af hátíðinni og miðla þeim samdægurs á heimasíðu LiveProject http://liveproject.me/event/roskilde og til Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Hátíðin hófst þann 27. júní en opnar formlega þann 30. júní, sama dag og fyrstu myndirnar fara upp vegg á Ljósmyndasafninu. Sýningin verður því í stöðugri þróun á meðan hátíðinni stendur. Því er hægt að segja að sýningin er „næstum því lifandi“ þar sem myndirnar fara upp á vegg og eru til sýnis nokkrum klukkustundum eftir þær eru teknar. Á meðan verkefninu stendur veltir Jóhannes fyrir sér þessum spurningum: Hversu auðvelt er að finna góða ljósmynd í þessu gríðarflóði mynda sem flæða yfir veraldarvefinn á degi hverjum? Hversu frábært er að geta tekið mynd og að hún sé komin á netið strax? Hversu frábært væri að geta tekið mynd vitandi að hún yrði komin upp á sýningu hinum megin við Atlantshafið næsta dag? Hefur fólk almennt áhuga og tíma til að skoða myndir sem ætlaðar eru fyrir vefinn í sýningarsal listasafns? Eru farsímar framtíð ljósmyndunar?
Jóhannes tekur myndirnar og myndböndin á nýjustu tegund af farsíma sem tekur hágæða myndir.
Jóhannes lærði grafíska hönnun í Listaháskóla Íslands. Hann hefur tekið skyndimyndir (e. Snapshot) af daglegu lífi Íslendinga undanfarin fimm ár. Haustið 2010 hélt hann sýninguna Jói de Vivre í versluninni Kron Kron og gaf út samnefnda 260 blaðsíðna bók með myndum frá síðustu fimm árum. Árið 2007 hélt hann sýningu í Gallerý Auga fyrir Auga sem nefndist Sirkusár. Þar sýndi hann portrettmyndir frá skemmtistaðnum Sirkus og gaf út samnefnda bók í takmörkuðu upplagi. Hann dvaldi einnig sex mánuði í New York árið 2008 þar sem hann aðstoðaði tískuljósmyndarann Magnús Unnar. Hingað til hefur Jóhannes nær eingöngu tekið myndir sínar á filmu svo sýningin markar viss tímamót fyrir hann. Þetta er fimmta einkasýning Jóa.
Áhugasamir sendið póst á joi@joi.is.
Heimasíða: www.joi.is
Sýningin er opin virka daga frá 12 – 19 og um helgar frá 13 – 17.
AÐGANGUR ÓKEYPIS − VERIÐ VELKOMIn
Almost Live / Næstum því lifandi 30th of June – 25th of August
For the last year Jóhannes Kjartansson has been taking photographs for LiveProject both in Reykjavík Fashion Festival and in AK Extreme snowboarding festival. Now he goes overseas and takes photographs of Roskilde festival in Denmark. The assignment is to take photos of the festival and send to LiveProject - http://liveproject.me/event/roskilde and the Reykjavík Museum of Photography the same day. The festival began 27th of June but opens formal on 30th of June, the same day the first photographs are exhibited in the museum. The exhibition is constantly changing threw the festival. You might say the exhibition is "almost live" because the photos go up on a wall only few hours after they are taken. While Jóhannes is working on this project a few questions come in to his mind like: Is it easy to find a good photograph in this massive of photographs that go on the web daily? How fantastic is it really to be able to take a photo and few seconds later it is on the internet? How great is it to take photo and know that the next day it is on an exhibition in a another country? Are people interested and do they have time to look at photos that are in an exhibition but designed to go on the web? Are mobile phones the future of photography?
Jóhannes takes all the photos on the newest version of a high definition mobile phone camera.
Jóhannes studied graphic design in Iceland Academy of the Arts. He has taken snapshots of Icelanders in their everyday life for five years. Fall 2010 he had an exhibition Jói de Vivre in the shop Kron Kron and also published a book under same name, 260 pages of photos he had taken the past five years. In 2007 he had an exhibition in Gallery Auga that was called Sirkusár. There he exhibited portraits of the bar Sirkus and he also published a book in limited addission of the photos under the same name. In 2008 he stayed for six months in New York and worked for fashion photographer Magnús Unnar. Until this day Jóhannes has only taken photos with film so this exhibition is in a way turning point for him. This is Jói‘s fifth solo exhibition.
For more information send email to joi@joi.is
webpage: www.joi.is
The exhibition is open weekdays between 12 pm – 7 pm and 1 pm – 5 pm weekends.
FREE ADMISSION!
SKOTIÐ - Valdís Thor

II – ljósmyndasýning Valdísar Thor / Exhibition - II, photos of Valdís Thor.
5. maí – 29. júní / 5th May – 29th June
Á sýningunni II gefur að líta ljósmyndir sem Valdís tók á síðasta áratug í nágrenni sínu í Reykjavík og víðar. Samtals eru þetta 100 myndir sem settar eru fram á frumlegan og skemmtilegan hátt. Markmið sýningarinnar er að fá áhorfandann til að taka þátt í verkinu og upplifa ljósmynd sem áþreifanlegan hlut. Uppsetningin undirstrikar þá endalausu möguleika sem ljósmyndinni eru færir. Gestum og gangandi er gefinn kostur á að breyta sýningunni, raða upp á nýtt og leika sér með ljósmyndirnar. Þannig verður sýningin afskaplega lifandi enda útkoman aldrei eins allt eftir því hver raðar myndunum. Það reynir á áhorfandann, sköpunargleðina, þátttöku og þor til þess að breyta uppröðuninni og sjá margbrotna sýningu á eins marga vegu og unnt er.
Valdís lærði í ljósmyndun við Iðnskólanum í Reykjavík. Eftir að hafa starfað sem ljósmyndari hjá Morgunblaðinu í eitt ár lauk hún sveinspróf haustið 2008. Þetta er önnur einkasýning Valdísar en síðastliðinn desember hélt hún sýninguna 101 Heimsókn auk þess að gefa út samnefnda bók.
Áhugasamir sendið póst á valdisthor@gmail.com til að nálgast verkin.
www.valdisthor.com Sýningin er opin virka daga frá 12 – 19 og frá 13 – 17 um helgar.
AÐGANGUR ÓKEYPIS − VERIÐ VELKOMIN!
In the exhibition II there are photographs of Reykjavik and other places which Valdís took for over a decade. All together there are about 100 photos that are formulated in an original way. The exhibition grasps the audience and makes him participate in the project and see the photo as a tangible object. This arrangement underlines the endless possibilities of the photo. Guests can chance the exhibition by changing the order of the photos. That way the exhibition becomes very exciting and the outcome is never the same, it only depends upon who is the changing the order of the photos. It is challenging and creativity is needed, participation and guts to change the order and see the exhibition in as many ways as possible.
Valdís learned photography in the Technical College Reykjavík. After working for one of the biggest newspaper, Morgunblaðið for one year she finished her journeyman‘s examination in 2008. This is Valdís’ second solo exhibition; the first one was in December, 101 Visit and also the book which Valdís published.
Contact – valdisthor@gmail.com if you are interested.
www.valdisthor.com
SKOTIÐ - Þórir Ingvarsson

Hús eru líka fólk - Houses are also people 10.03. - 04.05.2011
„Á sýningunni Hús eru líka fólk má sjá allskyns einstaklinga. Hópurinn má segja sé margbrotin blanda af skipulögðu, lötu, litaglöðu, nýtnu, ringluðu, sóðalegu og þroskuðu fólki“
Myndirnar eru flestar teknar hér á landi en Þórir hefur einnig myndað litríka „einstaklinga“ út um allan heim. Hann hefur unnið að myndaröðinni síðastliðin þrjú ár.
Þórir Ingvarsson (f. 1982) er búsettur í Kaupmannahöfn og hefur numið margmiðlunarhönnun og ljósmyndun við Københavns Tekniske Skole auk þess að vera með sveinspróf í rafeindavirkjun.
Myndirnar eru teknar á myndavél sem er jafn gömul ljósmyndaranum og náttúruleg lýsing notuð hverju sinni.
Sýningin er opin virka daga frá 12 – 19 og frá 13 – 17 um helgar.
AÐGANGUR ÓKEYPIS − VERIÐ VELKOMIN!
“In the exhibition Houses are also people there are many lively individuals, a mixture of very organized, lazy, colourful, thrifty, confused, crude and mature people.”
The photos in the exhibition are mostly taken in Iceland but Þórir has also taken photos of colourful “individuals“ around the world. He has worked on the series for the last three years.
Þórir Ingvarsson (born in 1982) is living in Copenhagen and has studied multimedia design at Københavns Tekniske Skole. He also has a degree in electronics.
The photos are taken on a camera that is as old as the photographer and he uses natural lighting.
The exhibition is open weekdays between 12 pm – 7 pm and 1 pm – 5 pm weekends.
FREE ADMISSION!
SKOTIÐ - Karl R. Lilliendahl

LJÓS RÉTTLÁTRA LOGAR... - THE LIGHT OF THE RIGHTEOUS SHINES...
13.01. - 09.03.2011 .
Um miðjan nóvember 2008 átti sér stað ein fjölmennustu mótmæli Íslandssögunnar. Ljósmyndarinn Karl R. Lilliendahl stóð fyrir utan Alþingi og myndaði fólkið sem var saman komið til þess að mótmæla. Á myndum hans má sjá hversu fjölbreyttur samfélagshópur koma saman og átti það eitt sameiginlegt að vilja sýna fram á óánægju sína með ástandið í þjóðfélaginu.
Karl segir: Fyrir mér var það vonin sem fékk fólk til að safnast saman. Von um það að mótmælin myndu breyta hugsunarhætti þjóðarinnar sem byggir þetta land. Fólkið stóð kyrrt í kuldanum. Óvissan var áþreifanleg. Fólkið kallaði eftir gömlum gildum sem höfðu verið sett til hliðar.
Þegar ég skoðaði myndirnar komu upp í hugann setningar úr Orðskviðum Salómons úr Biblíunni þar sem orð eins og viska, réttlæti, agi og réttvísi koma við sögu.
Mér fannst sumar þessar setningar passa við andrúmsloftið sem ríkti á Austuvelli laugardaginn 15.nóvember 2008.
Karl R. Lilliendahl er fæddur 1972. Hann starfar við ljósmyndun, kvikmyndatöku og framleiðslu á sjónvarpsefni.
Ljós réttlátra… er áttunda einkasýning Karls.
In mid November 2008 one of the largest protest occurred in Iceland. Photographer Karl R. Lilliendahl stood in front of the parliament and took photographs of the people who had gathered to protest. In his photos you can see how multifarious group came together and had only one thing in common, they were unhappy about the situation in the society.
Karl says: For me it was the hope that got people to come together. Hope that the protest would change the way of thinking in this nation that forms this country. People remained in the cold. Nobody knew what was going to happen. The people wanted the old values which had been set aside.
When I looked at these photos, sentences from the testament of Solomon in the Bible came to my mind, where words like wisdom, justice, discipline and righteous are written. I thought many of these sentences were relevant in the atmosphere in Austurvöllur Saturday 15th of November.
Karl R. Lilliendahl is born in 1972. He works as a photographer, cameraman and television production.
The Ligt of the Righteous Shines... is his 8 private exhibition.
SKOTIÐ - Helgi Halldórsson

THE LAST RESORT
18.11.2010 - 05.01.2011 . Ljósmyndasýning Helga Halldórssonar Hlemmur gefur innsýn í daglegt líf farþega, fastagesta og starfsfólks á Hlemmi. Helgi segir að „Reykjavík er skrítin blanda af borg og smábæ. Strætókerfið er ekki gott og fólk notar það bara í neyð; börn, unglingar, fátækir, gamalmenni, venjulegt og skrítið fólk. Hlemmur er ein stærsta strætóstöðin í Reykjavík og nýtur oft á tíðum ekki mikillar virðingar“. Helgi tók myndirnar á tímabilinu 2008-2009 en hóf undirbúningsvinnuna árið 2007. Til að ná sem bestri útkomu dvaldi Helgi löngum stundum á Hlemmi og mætti þar miklum skilning og þolinmæði á meðan á verkefninu stóð. Því nær Helgi að draga upp einkar einlæga og raunsæja mynd af daglegu lífi fólks af ýmsum stigum þjóðfélagsins sem hafa viðkomu á þessari víðfrægu strætóskiptistöð.
Helgi Halldórsson er fæddur í Reykjavík árið 1971 og er þar búsettur. Áhugi hans á ljósmyndun kviknaði um 1990 þegar hann starfaði á Morgunblaðinu og birtust nokkrar myndir hans í blaðinu. Helgi er áhugaljósmyndari og er virkur meðlimur á ljósmyndasíðunum Flickr.com & Ljósmyndari.is. Hann tók þátt í sýningunni Flickr flakk og heljarstökk sem sett var upp í Ljósmyndasafni Reykjavíkur árið 2007. Einnig birtust tvær myndir hans í bókinni Ljósár 2009. Hann stundaði nám í Photoshop & ljósmyndavinnslu hjá Tölvu & Verkfræðiþjónustunni árið 2009 ásamt því að hafa sótt fjölmörg námskeið undanfarin ár.
The photo-exhibition Hlemmur by Helgi Halldórsson gives an insight into the daily life of passengers, regulars and staff of bus terminal Hlemmur. Helgi says that "Reykjavik is a strange combination of village and adolescent city. Bus connections are poor here so people only use them as a last resort: children, teenagers, the poor, the old, the normal and strange people. Hlemmur is one of the biggest bus station in Reykjavík and often frowned on". Helgi shot the photos in 2008-2009 but began with the preparations in 2007. In order to obtain the best results, Helgi stayed long hours at Hlemmur which allowed him to earn the trust and understanding of the people there during the project. The result is a sincere and realistic portrayal of the daily lives of people of all stages of society who pass by at this reknown Reykjavík bus station.
Helgi Halldórsson was born in Reykjavík in 1971 and lives there. His interest in photography began ca. 1990 when he was working at Morgunblaðið newspaper where some of his photos appeared. Helgi is an amateur photographer and is an active member on Flickr.com and Ljósmyndari.is. He participated in the exhibition Flickr Era – Digtal Horizons at the Reykjavik Museum of Photography in 2007. Also two of his photos were published in the annual photo-book Ljósár (Light Year) of 2009. He studied Photoshop & Photo Processing at the Computer & Engineering school in 2009 and has taken many courses in recent years
SKOTIÐ - JOHAN ROSENMUNTHE

THE ISLE OF HUMAN
23.9 - 16.11 2010
Á sýningu danska ljósmyndarans Johans Rosenmunthe “The Isle of Human” eru dýr að finna á ólíklegustu stöðum. Dýrin falla inn í umhverfið á myndunum líkt og þau séu á sínum heimaslóðum. Myndirnar eru mikið unnar og eru samsettar úr allavega tveimur eða fleiri myndum. Hugmyndin að setja alls kyns framandi dýr inn í borgarlífið er sérstakt áhugamál ljósmyndarans til þess að skoða baráttu manneskjunnar um yfirráðasvæði. Manneskjan verður þó að búa í sátt og samlyndi með dýrunum í skóginum . Fátt er um svör en ljósmyndarinn segir að viðfangsefnið sé sjónrænt séð mjög áhugavert.
Sýningin er einnig á dagskrá Nordisk Kulturfestival sem haldin verður í Reykjavík dagana 29. október - 7 nóvember n.k.
Johan Rosenmunthe (1982, Kaupmannahöfn, Danmörk) nam ljósmyndun við skólann Fatamorgana sem hann lauk árið 2006. Nýverið hélt hann sýningu í Tom Christoffersen & Falkener Project gallerí. Verk hans eru sýnd í safni Danish Arts Agency þaðan sem hann hlaut nýverið styrk. Johan hefur tekið þátt í alþjóðlegum sýningum ásamt öðrum ljósmyndurum og hafa verk hans verið gefin út í bókum og er hann einn af stofnendum ljósmyndahópsins Løber Nøgen.
In the series “The Isle of Human” we find animals in unexpected places. The animals occupy the spaces as if it was their natural habitat. The images are manipulated and constructed from at least two separate images. The idea of placing exotic animals in a city environment stems from my / the photographers interest in the fight for new territories that humans are increasingly involved in. But humans still have to find a way to lie together. There is no final answer to this question, but the theme can be intellectually and visually stimulating.
The exhibition is also on the program of the Nordic Culture Festival held in Reykjavík between 29. October - 7 November 2010.
Johan Rosenmunthe (1982, Copenhagen, Denmark) finished his study of photography at Fatamorgana in 2006. His recent solo exhibitions include two galleries in Denmark, Tom Christoffersen Falkener Project. Rosenmunthe‘s work is represented in the collection of the Danish Arts Agency. He is included in several international group exhibitions and publications, and the co-founder of photographic collective Løber Nøgen.

SKOTIÐ - ANNE MARIE SÖRENSEN

BLUE FORMATIONS
29.7 - 21.9 2010
Sýningin Blue Formations fjallar um vatnið, hraunið og vindinn sem hreyfir við náttúruöflunum.
Hún er afrakstur leiðangurs sem danski ljósmyndarinn Anne Marie Sørensen fór í við strönd nálægt Eyrarbakka á árunum 2009–2010.
Anne Marie segir um myndir sínar: „Ég finn mótífin í stöðugri hreyfingu vatnsins; öldur að koma að landi og sogast aftur inn í dökkan sandinn eða flæða aftur út í sjóinn. Í hverri nýrri öldu og með hverri nýrri vindhviðu verður til nýtt form. Hljóðið, hinn hægi hrynjandi í lognviðrinu og sjávarlyktin ramma inn mína sjónrænu reynslu og ég fer aftur og aftur að Eyrarbakka.“
Blue Formations er tólfta sýning Anne Marie (f.1954). Hún hefur sýnt verk sín í Danmörku, Færeyjum og nú á Íslandi.
The exhibition Blue Formations explores the water, the lava and the wind that moves the elements. Blue Formations is based on photographic research carried out at the beach near Eyrarbakki in 2009-10 by the Danish photographer Anne Marie Sørensen (b. 1954).
“I find my motives in the continuous movement of the water: waves coming in, getting sucked down into the dark sand or flowing back towards the sea. For every new wave and wind a new shape is formed. The sound, the slow rhythm in calm weather and the smell of the sea frames my visual experience and I go back to Eyrarbakki again.”
“Blue formations” is Anne Marie Sørensen`s twelfth solo exhibition. She has exhibited her work in Denmark, Faroe Islands and now in Iceland.
For more information: www.photoriet.dk
SKOTIÐ - YUNJOO KWAK
MILLISPIL NR.6. / INTERLUDE NO.6
4.6 - 27.7 2010
Síðastliðin fimm ár hefur Suður-kóreska listakonan Yunjoo Kwak fjallað um þá óreiðu sem hún hefur skynjað í hinu stofnanavædda samfélagi þar sem tvískipting viðtekinna gilda ríkir og ákvarðar hvað sé eðlilegt og óeðlilegt, fært og ófært, æðra og óæðra og það ferli hvernig hún tæklar þessi atriði í verkum sínum.
„Við það að reyna að komast yfir óreiðuna innan hinna persónulegu marka, upplifði ég tilfinningu ósamlyndis sem afleiðingu árekstra milli þessa tveggja ólíku gilda og nýtti mér hana til að varpa ljósi á stofnanaleg vandamál þessa samfélags og að þau verði viðurkennd. Þetta varð að óhjákvæmilegu markmiði fyrir mig til að gagnrýna og að til að komast yfir þetta og einnig varð það að undirstöðu breytinga og þróunar á list minni yfir í aðra vídd. Útgangspunktur verka minna hófst með spurningum um heiminn utan hins kvíslgreinda kerfis gilda og reglna.“
Myndirnar af hinum hefðbundnu kóresku hópdönsum sem samanstanda af ungum stúlkum endurspeglar þá pólitísku skekkju í kóreskri menningu sem ríkti meðan á “nútímavæðingunni” stóð. Í þeim leitaðist Yunjoo við að endurvekja gleymdar minningar, grafnar í það sem virðist hin fullkomna stofnun með því að raða upp ungum stúlkum sem skrautlegum fígúrum í fræðslulegri athöfn.
Þessar ungu dansmeyjar hafa alltaf spegil við höndina þar sem geta séð til þess að þær líti sem best út og að hreyfingar þeirra séu alltaf fullkomnar. Þær eru tilbúnar til að leggja á sig sársaukafullar æfingar til þess að keppast við að vera léttar sem andrúmsloftið. Undirstaða þessa hefðbundna kóreska dans sem þær stunda svo stíft er tilfinningin svokallaða „Han“ – andi sem rekur uppruna sinn til kóreskra lífshátta og orkunnar úr jörðinni. Hann „blómgast“ út um hné dansmeyjanna og breiðir úr sér upp til skýjanna. Kannski má segja að tilfinningin í kóreska dansinum sé fólgin í því að leysa vandamálin innra með sér í stað þess að takast beint á við þau.
Dagskrá í tengslum við sýninguna:
Þriðjudagurinn 8.júní kl. 12:00 – Yunjoo Kwak fremur gjörning í tengslum við sýninguna í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 6.hæð.
ALLIR VELKOMNIR!
Yunjoo Kwak (f. Seoul, S-Kóreu, 1977)
Yunjoo Kwak lauk B.F.A. gráðu frá Sang Myung University í Seoul árið 2002 og a M.F.A. gráðu frá Korea National University of Art, í Seoul árið 2008. Hún býr og starfar um þessar mundir í Hollandi.
For the last five years, the South-Korean artist Yunjoo Kwak has dealt with the confusions that she´s felt in the institutionalized society where the dichotomy of common values rules and decides what is normal and abnormal, able-bodied and disabled, and superior and inferior and the process to overcome them in her works.
“Trying to get over the confusions within the personal and private boundaries, I experienced the feeling of estrangement resulted from collisions between the two different values and applied it to the recognition of institutional problems in this society. This became the inevitable target for me to criticize and to tide over and also acted as the basis for my art to change and advance into another dimension. My works started from the question on the 'outside' world beyond the dichotomous system of values and orders.”
The documentation of 'traditional' Korean group dancing of young girls is speaking of the political distortion of Korean culture during the process of 'modernization'. Here, Yunjoo seeks to awaken forgotten memories buried in the looking complete institution by arranging the grotesque figures of young girls performing an instructional act. These young dancers always watch mirrors and correct their look and posture. They are willing to do the painful physical training striving to be light as the air. The essence of Korean traditional dance they are pursuing desperately like this is the so-called Korean emotion, “Han”. It is the spirit generated from Korean way of life and energy of the soil. It ripens in the dancer´s knees and sprout out towards the sky. Perhaps it can be said that it is the emotion of Korean dance to solve the problems inside and all alone not confronting them directly.
Exhibition Programme:
Tuesday 8.June at 12:00 – Yunjoo Kwak will do a performance in connection with the exhibition in the exhibition space Skotið, the Reykjavík Museum of Photography, Tryggvagata 15, 6th floor.
ALL WELCOME!
Yunjoo Kwak, (b. Seoul, S-Korea, 1977)
Yunjoo Kwak finished a B.F.A. from the Sang Myung University in Seoul in 2002 and a M.F.A. from Korea National University of Art, in Seoul in 2008. She currently lives and works in the Netherlands.
SKOTIÐ - ELSA BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
TREGI / MOURNING
8.4 - 1.6 2010
Sýningin Tregi eftir Elsu Björg Magnúsdóttur samanstendur af þremur heildstæðum verkum. Verkin eru tregablandin portrett sem tjá missi. Í viðfangsefni sínu leitast Elsa við að tjá tregann sem hún upplifir í gegnum móður sína með því að varpa honum fram með myndum sem hún kallar Sorgarportrett.
Elsa er heimspekingur að mennt og útskrifaðist með mastersgráðu í fagurfræði og siðfræði frá King's College í London árið 2007.
The exhibition Mourning by Elsa Björg Magnúsdóttir consists of three integral works; plaintive portraits expressing loss. In her subject Elsa seeks to express the heartache she experiences through her mother by projecting it in a photo project, which she calls Portraits of Sorrow.
Elsa is a philosopher. She graduated with an MA in Aesthetics and Ethics from King´s College in London in 2007.
SKOTIÐ - ODDVAR

IKEA & Da Boyz
6.2 - 6.4 2010
Ljósmyndarinn og myndlistarmaðurinn Oddvar Örn Hjartarson hefur á undanförnum árum getið sér gott orð fyrir sviðsettar ljósmyndir sínar en myndheimur hans er einkar gáskafullur og litríkur. Styrkur Oddvars liggur ekki hvað síst í því hversu fjölhæfur hann er. Auk ofangreindra starfstitla er hann er mjög fær stílisti, hárgreiðslumaður og förðunarfræðingur og hefur starfað töluvert við það í auglýsingageiranum. Líklega er hann hvað þekktastur fyrir samstarf sitt við Pál Óskar en myndir hans af poppgoðinu, m.a. af metsölugeisladisk hans Silfursafninu eru alþekktar hér á landi.
Sýningin IKAE & Da boyz er samsett úr tveimur hlutum; „IKAE“, sem á hugmyndafræðilegar rætur til svokallaðra IKEA mynda og Oddvar setur hér í glænýtt samhengi. „Da Boyz“ er myndröð af sætum strákum þar sem regnbogalitir samkynhneigðra birtast í ýmsum formum en með þá vinnur Oddvar markvisst í sínum verkum.
Oddvar Örn Hjartarson (f.1977) útskrifaðist útskrifaðist með BA gráðu frá LHÍ 2003 og sem förðunarfræðingur frá EMM School of Make up árið 2005. Hann lauk sveinsprófi í ljósmyndun frá Medieskolerne í Viborg, Danmörku árið 2009 og mun ljúka sveinsprófi í háriðn frá Tækniskólanum árið 2011.
Oddvar Örn Hjartarson, photographer and artist, has earned himself a good reputation for his staged photography in recent years with his playful and colourful imagery. Oddvar´s strength lies not least in his versatility. Besides from the above mentioned professions, he has worked considerably in the ad sector as a stylist, hairdresser and make-up artist, in which he is very competent. Oddvar is probably best known for his collaboration with Icelandic pop star Páll Óskar. His photos of the pop icon, e.g. his record breaking album The Silver Collection are well known in Iceland.
The exhibition IKAE & Da boyz consists of two parts: „IKAE“, which ideological roots lie in the so called IKEA pictures. Here, Oddvar brings them in a brand new context.
„Da Boyz“ is a serie of cute boys where the rainbow colours as a symbol of gay pride appear in different forms. Oddvar systematically uses these colours his work.
Oddvar Örn Hjartarson (1977) finished his BA from the Iceland Academy of the Arts in 2003. He graduated as a make-up artist from EMM School of Make up in 2005. He graduated as a professional photographer from The Danish School of Photographers in Viborg, Denmark in 2009. He will complete his hairdressing study from the School of Polytechnic in Iceland in 2011.
|