VIÐBURÐIR

Ýmsir viðburðir eru á boðstólnum hjá safninu allan ársins hring. Fastir liðir eru í tengslum við Menningarnótt sem haldin er í ágúst, Vetrarhátíð og Safnanótt í febrúar.


 

 

 

 

 

 

Sýn íslensks ljósmyndara á franskan kollega sinn:
Pétur Thomsen segir frá Marc Riboud

Föstudaginn 18. nóv. kl.12:00

Þann 3. september s.l. var ljósmyndasýningin Marc Riboud – ljósmyndir í 50 ár opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á vegum Alliance Française og Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Sýningin stendur til 8. janúar 2012.

Í hádeginu föstudaginn 18. nóvember, ætlar Pétur Thomsen að segja gestum frá sinni sýn á verkum Marc Riboud.

Pétur Thomsen er einn fremsti ljósmyndari okkar í dag. Nýlega sýndi hann verk sín annars vegar í Listasafni Íslands og hins vegar í Þjóðminjasafni Íslands. Hann lærði ljósmyndun í Frakklandi, í einum af virtustu ljósmyndaskólum heims: École Nationale Supérieure de la Photographie (ENSP) í Arles.

Ein af mörgum viðurkenningum sem hann hefur fengið, eru LVMH verðlaun ungra listamanna (Louis Vuitton Moët Hennessy verðlaunin) árið 2004.
Frekari upplýsingar:
http://www.peturthomsen.is/

Á íslensku og á frönsku.

Pompidou safnið í París fékk nýlega mjög höfðinglega gjöf frá Marc Riboud. 40 upprunalegar prentanir eru núna til sýnis í safninu. Sýningin stendur til aprílloka 2012.
http://www.marcriboud.com/

Það er einstakt tækifæri að fá að sjá ljósmyndir eins fremsta ljósmyndara heimsins í Reykjavík – ekki láta þetta tækifæri ganga ykkur úr greipum.

Verið velkomin!


LJÓSMYNDARASPJALL - Fréttaljósmyndun á Íslandi
Þorkell Þorkelsson og Valdís Óskarsdóttir





Ljósmyndasafn Reykjavíkur
föstudaginn 4. nóvember kl 12 –13

Í hádeginu, föstudaginn 4. nóvember n.k. mun fara fram fyrsta „Ljósmyndaraspjall“ vetrarins í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og verður það helgað fréttaljósmyndun á Íslandi.
Þorkell Þorkelsson og Valdís Óskarsdóttir munu ræða um fréttaljósmyndir sínar og sýndar verða valdar myndir. Þorkell starfaði sem ljósmyndari á Morgunblaðinu í rúma tvo áratugi og hefur mjög fjölbreytta reynslu sem ljósmyndari. Valdísi Óskarsdóttur kannast margir við úr kvikmyndaheiminum þar sem hún hefur starfað sem klippari og leikstjóri. Valdís starfaði um árabil sem blaðaljósmyndari og er hluti af hennar myndum varðveittur á Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Markmiðið með spjallinu er að varpa ljósi á stöðu fréttaljósmyndunar á Íslandi bæði í samtímalegu og sögulegu tilliti. Vonast er eftir sem flestum með innlegg í umræðurnar.
Í lokin verða bornar fram léttar veitingar í tilefni af opnun fimmta og síðasta hluta sýningaraðar Leifs Þorsteinssonar, „Mannlífsmyndir frá Evrópu“.

 

 

 

 

Orri tilnefndur til Deutsche Börse verðlaunanna 2012



Ljósmyndasafn Reykjavíkur leggur metnað í að kynna íslenska ljósmyndara á alþjóðlegum vettvangi og tilnefnir íslenska ljósmyndara til fernra alþjóðlegra verðlauna. Þessi verðlaun eru: Henri Cartier Bresson Awards, Hasselblad Awards, Leopold Godowsky, Jr. Color Photography Awards og The Deutsche Börse Photography Prize.

Að þessu sinni tilnefnir safnið ljósmyndarann Orra til Deutsche Börse verðlaunanna 2012. Orri hefur um árabil myndað íslensk eyðibýli og á sýningunni Innviðir, sem sett var upp í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í byrjun þessa árs, birtist yfirlit eyðibýlamynda hans frá árunum 1999-2010. Fyrsti hluti ljosmyndanna úr myndaröðinni voru sýndar haustið 2001 í Galleri Image í Árósum, elsta ljósmyndagalleríi Evrópu. Sýningin fékk lofsamlega dóma í stærsta dagblaði Árósa og vorið eftir var syningin sett upp í Galleríi Skugga í Reykjavík vorið 2002. Í framhaldinu fóru valdar myndir úr þessum fyrsta hluta verkefnisins á samsýningar í Moskvu, Frakklandi og Serbíu. Orri stundaði nám í ljósmyndun við School of Visual Arts í New York og lauk þaðan BFA-gráðu árið 1996. Auk þess að taka ljósmyndir semur hann, tekur upp og útsetur tónlist. Orri og Dagur Kári reka saman tvíeykið Slowblow sem sent hefur frá sér nokkrar plötur, auk þess að hafa samið og útsett tónlist við allar myndir Dags Kára, kvikmyndir á borð við Nóa Albinóa, Voksne Mennesker og The Good Heart. Nú síðast gerðu þeir félagar tónlistina fyrir kvikmyndina Brim eftir Árna Ólaf Ásgeirsson.

Markmiðið með Deutsche Börse verðlaununum er að verðlauna samtíma-ljósmyndara af hvaða þjóðerni sem er, sem lagt hefur af mörkum merkasta framlagið (fyrir sýningu eða bók) til ljósmyndunar í Evrópu árinu áður. Verðlaunin voru fyrst sett á laggirnar árið 1996 af The Photographer´s Gallery í London í þeim tilgangi að kynna það besta sem væri að gerast í alþjóðlegri samtímaljósmyndun. Deusche Börse hafa styrkt verðlaunin um 30.000 pund frá árinu 2005. Verðlaunin kynna nýtt hæfileikafólk til leiks og beinir kastljósinu að því besta í ljósmyndaheiminum. The Photographer´s Gallery og Deutsche Börse hafa verið tilnefnd til Arts & Business International Award 2008 fyrir samvinnu sína við Deutsche Börse Photography Prize.

Verðlaunin eru kynnt af The Photographer´s Gallery og styrkt af Deutsche Börse group.
Meðal verðlaunahafa eru Esko Männikkö, Jürgen Teller, Andreas Gursky og Paul Graham.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


ÚTLÁN BÓKA

Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur er að finna sérfræðibókasafn um ljósmyndun og ljósmyndatengd efni ásamt fjölda fagtímarita. Nú er hægt að fá bækur til útláns í gegnum bókasafnskerfið GEGNI.

 

©Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavik Museum of Photography photomuseum@reykjavik.is